Leita í fréttum mbl.is

Stofnfundur „Landnemans“ á sunnudaginn

Nýtt félag um málefni innflytjenda og fjölmenningar í tengslum við Samfylkinguna

Stofnfundur „Landnemans“ á sunnudaginn

„Landneminn“ er vinnuheiti félags sem stofnað verður nú á sunnudaginn, 15. júní,  á Hressó í Austurstræti, Reykjavík.

Fyrir nokkru kviknaði sú hugmynd meðal flokksmanna á höfuðborgarsvæðinu að stofna félag í tengslum við Samfylkinguna sem væri vettvangur fyrir flokksmenn af erlendum uppruna sem og innfædda flokksmenn með áhuga á fjölmenningu, umheiminum og málefnum innflytjenda. Félagið væri þó galopið fyrir óflokksbundna. Nú er þessi hugmynd orðin að veruleika.

Stofnfundurinn á Hressó á sunnudaginn hefst kl. 16, og auk stofnfundarstarfa flytja þar ávörp Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar, Hrannar B. Arnarsson formaður innflytjendaráðs og Bjartur Logi Ye Shen, landnemi og bankamaður. Þegar líður á fundinn verða bornar fram veitingar og Leone Tinganelli syngur og leikur ásamt hljómsveit sinni, Delizie Italiane.

Þá verða „frumsýndir“ á fundinum glæsilegir bæklingar átta tungumálum um stefnu Samfylkingarinnar.

Þriggja manna hópur tók að sér framkvæmdir við stofnfundinn fyrir hönd undirbúningshóps og eru það Bjartur Logi Ye Shen, Kolfinna Baldvinsdóttir og Oddný Sturludóttir.

Mætum öll – látið innflytjendur og aðra áhugamenn um fjölmenningu vita!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband